Starfsendurhæfing VIRK
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. Félagsfólk í FHSS hefur aðgang að þjónustu VIRK starfsendurhæfingarsjóðs.
Tilgangur með þjónustu á vegum VIRK er að aðstoða fólk við að komast til vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku viðkomandi einstaklings.
Einstaklingur sem óskar eftir þjónustu VIRK þarf að byrja á að panta tíma hjá lækni og ræða við hann hvort starfsendurhæfing hjá VIRK sé raunhæfur kostur.
Meginskilyrðin fyrir starfsendurhæfingu
- Að viðkomandi geti ekki sinnt starfi sínu að hluta eða öllu leyti eða tekið þátt á vinnumarkaði vegna hindrana af völdum heilsubrests sem rekja má til veikinda eða slysa. Um er að ræða fjarvistir frá vinnu í lengri tíma vegna heilsubrests af andlegum eða líkamlegum toga.
- Að markmið einstaklings sé að verða aftur virkur þátttakandi á vinnumarkaði, eða auka þátttöku á vinnumarkaði, svo fljótt sem verða má.
- Að geta og vilji sé til staðar til að taka markvissan þátt í starfsendurhæfingunni og fylgja þeirri áætlun sem þar er sett fram.
Aðstoð FHSS
Ef þú ert enn með spurningar sem ekki er svarað hér fyrir ofan hvetjum við þig til að hafa samband við skrifstofu FHSS.
Þú getur sent inn fyrirspurn, til dæmis varðandi almennar spurningar um vinnurétt og kjaramál.
Þú getur líka stofnað formlega þjónustubeiðni sem fer sjálfkrafa inn í málaskrár kerfi okkar, til dæmis vegna umfangsmikilla eða viðkvæmra erinda
Loks má bóka símtal við sérfræðing, ef þú heldur að það eigi betur við.
Þjónustuskrifstofa FHSS er til húsa í Borgartúni 6 (sama húsi og BHM). Hún er opin alla virka daga frá kl. 9-12 og 13-16. Síminn er 595 5165.