Aðild að stéttarfélagi er ávísun á öryggi. Félagsfólk nýtir samtakamátt sinn til að knýja á um bestu mögulegu kjör sín og réttindi. Gott stéttarfélag veitir persónulega ráðgjöf og þjónustu, allt frá ráðningarsamningi til starfsloka. Það opnar einnig aðgengi að margskonar fríðindum og fjárhagslegum stuðningi og er traustur bakhjarl þegar á þarf að halda.
FHSS gerir kjarasamninga fyrir hönd síns félagsfólks. Einnig eru gerðir stofnana- og fyrirtækjasamningar og veitt ráðgjöf við gerð ráðningasamninga. Þannig fylgir stéttarfélagið því eftir að kjör og réttindi séu alltaf í takt við það besta sem völ er á.
Með aðild að FHSS opnast möguleikar á margvíslegum styrkjum. Þar skiptir þátttaka félagsins í BHM miklu máli. Styrktarsjóður veita fjölbreytta styrki og öflugt öryggisnet en starfsmenntasjóðirnir styðja við sí- og endurmenntun.
FHSS veitir félagsfólki sínu aðgang án endurgjalds að alls kyns fræðslu, fyrirlestrum og námsefni sem jafnt getur nýst í leik og starfi. Oft er efnið rafrænt og hægt að lesa, horfa og hlusta við hentugleika.
Á þessari síðu má finna fundargerðir og fundargögn aðalfunda FHSS.
Fundargerð aðalfundar 29. apríl 2024
Ársreikningur FHSS 2023
Ársskýrsla stjórnar FHSS
Fundargerð aðalfundar 23. mars 2023Tillaga að heildarendurskoðun laga FHSS
Ársreikningur 2022
Greinargerð með heildarendurskoðun laga FHSS
Áritun skoðunarmanna vegna ársins 2022
Fundargerð 24. mars
Ársreikningur 2021
Tillaga um félagsgjöld
Tillaga um þóknanir fyrir stjórnar- og nefndarstörf
Tillaga að samþykkt um heildarendurskoðun á lögum FHSS
Fundargerð 25. mars
Ársskýrsla 2020
Ársreikningur 2020
Lagabreytingartillaga