Forkastanleg ummæli innanríkisráðherra
Fyrir hönd aðildarfélaga sinna þar á meðal FHSS gerir BHM alvarlegar athugasemdir við ummæli innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, í ræðustól Alþingis í gær (24/1). Þar lét ráðherra að því liggja að starfsmenn stjórnarráðsins væru háðir eldvatni, ferðalögum til Brussel, hóteldvöl og dagpeningum.
Slík ummæli ráðherra, um starfsfólk sitt og stjórnarráðsins alls, eru forkastanleg og með ólíkindum að fyrrum leiðtogi opinberra starfsmanna til áratuga láti þau frá sér fara.
BHM mótmælir þessari aðför að faglegum heilindum starfsfólks stjórnsýslunnar og krefst þess að Ögmundur biðji starfsfólk sitt afsökunar á ómaklegum ásökunum.
Ummæli Ögmundar voru eftirfarandi:
Það sem ég hef mestar áhyggjur af er að stofnanakerfið ánetjist þessari umræðu, því að nú er talað um eldvatnið. Hvernig stendur á því að alltaf þegar bornir eru upp samningar innan Evrópusambandsins, það er mjög algeng regla, er stofnanaveldið, hvort sem það er verkalýðshreyfing, atvinnurekendasamtök eða stjórnsýslan, hlynnt en almenningur á móti? Það er vegna þess að það er búið að fara með flugvélafarma viku eftir viku, mánuð eftir mánuð (Forseti hringir.) út til Brussel þar sem menn halda við á kostnað ríkisins. Þetta fólk ánetjast Evrópusambandinu og vill ólmt halda áfram og fá að fara í fleiri ferðir, fleiri hótelferðir, meiri dagpeninga. Það er þetta sem er að gerast, það er þess vegna sem stofnanaveldið ánetjast Evrópusambandinu.

Lokað fyrir athugasemdir
Ekki er hægt að setja inn athugasemd við þessa grein.