Árshátíðin verður föstudaginn 17. febrúar
Árshátíð Stjórnarráðsins 2012 verður að þessu sinni haldin í Hörpu föstudagskvöldið 17. febrúar og hefst hún kl. 19. Veislustjóri verður Björk Jakobsdóttir, meðal skemmtiatriða verður Stjórnarráðsbandið, Jói G. & Gunni Helga en Þórir Úlfarsson spilar undir borðhaldi. Síðan mun Páll Óskar sjá um að spila fyrir dansi. Nánari upplýsingar hafa verið sendar út og skráningarblöð hengd upp.
Það eru sem áður stéttarfélögin FHSS og FSS sem standa að árshátíðinni í samstarfi við STJR.


Lokað fyrir athugasemdir
Ekki er hægt að setja inn athugasemd við þessa grein.