Heim » Fréttir

 
 

Fréttir

 
Laun félagsmanna FHSS

Laun félagsmanna FHSS

Í meðfylgjandi skjali eru birtar upplýsingar um þróun launa félagsmanna FHSS milli ára eins og þau voru skráð í marsmánuði. Á árinu 2011 birti stjórn FHSS laun félagsmanna í marsmánuði fyrir árin 2007 til 2010 og bætist nú við árið 2011. Upplýsingarnar eru sóttar úr skrám sem fjármálaráðuneytið afhendir BHM [...]

 

Formaður FHSS tjáir sig um ummæli innanríkisráðherra

Telja ummæli óafsakanleg Formaður eins stéttarfélags stjórnarráðsins segir ummæli innanríkisráðherra um embættismenn og dagpeninga ómakleg. Fundað verður um málið. Ráðherra biðst afsökunar í grein í blaðinu í dag. „Þetta er í rauninni ómaklegt og óafsakanlegt gagnvart starfsmönnum ráðuneytanna og stjórnarráðsins og vonandi á misskilningi byggt,“ segir Hanna Dóra Másdóttir, formaður [...]

 

BSRB og BHM ósátt við Ögmund

Lesið meira um það á vef RÚV:  BHM og BSRB ósátt við Ögmund

 

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra biðst afsökunar?

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra biðst afsöknar, í grein í Fréttablaðinu í dag, á umdeildum ummælum sínum um ferðir opinberra starfsmanna til Brussel. Þessi ummæli Ögmundar komu fram á Alþingi. Hann sagðist hafa séð í öðrum Evrópuríkjum að stofnanaveldið, eða embættismenn, eigi til að ánetjast Evrópusambandinu, og eigi sér þann draum helstan [...]

 
Ögmundur biðst afsökunar

Ögmundur biðst afsökunar

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segist í grein í Fréttablaðinu í dag hafa gert einstaklingum það upp að eiga sér þann draum helstan að halda til á hótelum á kostnað skattgreiðenda. Þetta hafi verið ómaklegt og ósanngjarnt og hann biðji þetta fólk afsökunar. Ögmundur sagði í þingræðu í síðustu viku að hætta [...]

 
Ummæli innanríkisráðherra vekja reiði

Ummæli innanríkisráðherra vekja reiði

Eiður æfur: Skammastu þín og þú átt að biðjast afsökunar – Á maður að borða pylsur úti á horni? Fyrrverandi sendiherra segir að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, eigi að skammast sín og biðjast afsökunar. Hann rifjar upp þegar hann var sendur út og spurði hvort hann ætti að borða pylsur úti [...]

 

Forkastanleg ummæli innanríkisráðherra

Fyrir hönd aðildarfélaga sinna þar á meðal FHSS gerir BHM alvarlegar athugasemdir við ummæli innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar, í ræðustól Alþingis í gær (24/1).  Þar lét ráðherra að því liggja að starfsmenn stjórnarráðsins væru háðir eldvatni, ferðalögum til Brussel, hóteldvöl og dagpeningum. Slík ummæli ráðherra, um starfsfólk sitt og stjórnarráðsins alls, [...]

 
Bréf stjórnar FHSS til ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytis

Bréf stjórnar FHSS til ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytis

Að ósk félagsmanna í FHSS er starfa í mennta- og menningarmálaráðuneytinu sendi stjórn FHSS neðangreint bréf til ráðuneytisstjóra mennta- og menningarmálaráðuneytis. Smellið á krækjuna hér að neðan til að lesa bréfið. Bréf FHSS

 
Árshátíðin verður föstudaginn 17. febrúar

Árshátíðin verður föstudaginn 17. febrúar

Árshátíð Stjórnarráðsins 2012 verður að þessu sinni haldin í Hörpu föstudagskvöldið 17. febrúar og hefst hún kl. 19. Veislustjóri verður Björk Jakobsdóttir, meðal skemmtiatriða verður Stjórnarráðsbandið, Jói G. & Gunni Helga en Þórir Úlfarsson spilar undir borðhaldi. Síðan mun Páll Óskar sjá um að spila fyrir dansi.  Nánari upplýsingar hafa [...]

 
Gunnar Alexander í fulltrúaráði Orlofssjóðs BHM

Gunnar Alexander í fulltrúaráði Orlofssjóðs BHM

Gunnar Alexander Ólafsson hefur tekið sæti fyrir hönd FHSS í fulltrúaráði Orlofssjóðs BHM.