Heim » Fréttir (síða 2)

 
 

Fréttir

 
Jólaball FHSS og FSS 2011 29. desember 2011 kl. 16 – 18

Jólaball FHSS og FSS 2011 29. desember 2011 kl. 16 – 18

Jólaball 2011 fyrir börn/barnabörn starfsmanna stjórnarráðsins verður haldið í sal í Borgartúni 6, 1. hæð (Rúgbrauðsgerðinni) 29. desember 2011 kl. 16 – 18. Miðaverð kr. 700, innifalið: kaffihlaðborð fyrir alla og að auki fyrir börnin, gos og sælgætispoki Miðar verða seldir við innganginn, einungis tekið við greiðslu í peningaseðlum.

 
Hádegisfræðsla – ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um stefnu stjórnvalda og stöðu mannauðsmála ríkisins

Hádegisfræðsla – ný skýrsla Ríkisendurskoðunar um stefnu stjórnvalda og stöðu mannauðsmála ríkisins

Mikið hefur verið rætt um nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar um stefnu stjórnvalda og stöðu mannauðsmála ríkisins. Af því tilefni munu fulltrúar Ríkisendurskoðunar þær Kristín Kalmansdóttir og Ingunn Ólafsdóttir koma og kynna helstu niðurstöður fyrir félagsmönnum BHM í hádegisfræðslu þann 5. október kl.12.00-13.00. Hægt er að skrá sig hér: www.bhm.is/thjonusta/namskeid/dagskrafraedslu/nanar/314 Bandalag háskólamanna [...]

 

Hádegiserindi þriðjudaginn 6. september kl. 12:00 – 13:00

Ísland á aðild að Menntaáætlun Evrópusambandsins og felast þar margir styrkjamöguleikar til símenntunar og starfsþróunar. Menntáætlunin sameinar undir einum hatti stuðning Evrópusambandsins við menntun frá leikskóla til háskóla ásamt fullorðinsfræðslu og sá hluti sem hentar best háskólamenntuðum er Leonardo starfsmenntunaráætlun ESB. Hægt er m.a. að sækja um styrki til starfsþjálfunar [...]

 

Svefn og kvíði – námskeið fimmtudaginn 8. september kl. 08:30 til 12:30

Sóley Dröfn Davíðsdóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði og einn af stofnendum Kvíðameðferðarstöðvarinnar þar sem hún sinnir einstaklings- og hópmeðferð við kvíðaröskunum. Hún sinnir jafnframt þjálfun sálfræðinema og kennslu á háskólastigi. Sóley hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð. Námskeiðið er opið félagsmönnum BHM án endurgjalds og er haldið í húsnæði [...]

 

Réttur félagsmanna í fæðingarorlofi

Breyting á reglum starfsmenntunarsjóðs BHM Til aðildarfélaga með aðild að starfsmenntunarsjóði BHM. Efni: Greiðslur í fæðingarorlofi. Með vísan í erindi sem sent var stjórn Starfsmenntunarsjóðs BHM 30. Nóvember 2010 og fjallað hefur verið um á fundum upplýsist að Stjórn Starfsmenntunarsjóðs BHM samþykkti á fundi 18. júlí sl. að breyta reglum [...]

 

BHM krefst eingreiðslu fyrir fólk í fæðingarorlofi

Bandalag háskólamanna lýsir andstöðu við þá túlkun vinnuveitenda að synja fólki í fæðingarorlofi um 50 þúsund króna eingreiðslu sem samið var um í nýgerðum kjarasamningum. Bandalagið telur þessa ráðstöfun sérlega ómálefnalega þegar horft er til opinberra vinnuveitenda, ekki síst ríkisins, í ljósi þess að eingreiðslan er greidd atvinnuleitendum og lífeyrisþegum. [...]

 

Kynningarfundur á kjarasamningi FHSS við ríkið – 16. júní kl. 16:00

Kynningarfundur á kjarasamningi verður á 4. hæð í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Atkvæðagreiðsla vegna kjarasamnings FHSS og ríkisins mun hefjast á morgun fimmtudaginn 16. júní. Félagsmenn koma til með að greiða atkvæði rafrænt og mun hver og einn fá sendar nánari leiðbeiningar um atkvæðagreiðsluna í tölvupósti. Vegna fjölda áskoranna hefur stjórn [...]

 

FHSS undirritar kjarasamning við ríkið

Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins undirritaði kjarasamning við ríkið um kvöldmatarleitið í gær ásamt aðildarfélögum BHM. Kynning á samningunum verður nk. fimmtudag 9. júní kl. 15:30 í mötuneyti Arnarhvoli. Rafræn atkvæðagreiðsla verður í kjölfarið. Smellið hér til skoða kjarasamninginn við ríkið ásamt launatöflur. Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og munu allir félagsmenn fá tölvupóst um atkvæðagreiðsluna og hvernig eigi að [...]

 

Samningaviðræður FHSS hafnar

Samingaviðræður FHSS við Samninganefnd Ríkisins (SNR) eru hafnar og hafa staðið yfir sl. viku. Það er ófrávíkjanleg krafa FHSS að skerðingar launa félagsmanna frá janúar 2010 verði leiðréttar að fullu. Skerðing á launum félagsmanna brýtur í bága við stöðugleikasáttmálann frá 25. júní 2009. Á fundi ríkisstjórnarinnar 18. ágúst 2009 voru [...]

 

Um kosningu nýrrar stjórnar FHSS

Þann 29. mars sl. var kosin ný stjórn í FHSS. Það nýmæli var nú haft við kosningarnar að stjórn skipaði kjörstjórn úr röðum trúnaðarmanna og var frambjóðendum gefinn kostur á að tilkynna um framboð sitt til kjörstjórnar fyrir aðalfund. Kjörstjórn sá einnig um að koma kynningum frambjóðenda til félagsmanna, þegar [...]